Madame Erna
06.01.2009 16:39:43 / erna

Gledilegt nýtt ár og 3 + 3 = 6

 Gleðilegt ár mín kæru og þakka ykkur fyrir það liðna. Nú er mar komin aftur að deskinu að vinna eins og góðum konum sæmir. Lífið er ljúft hér fyrir utan smá flensuskít sem sló mig niður stuttu eftir arrival í brux (nema það hafi verið sjokkið vegna yfirkomandi sexu). Svo slæm var heilsan að ég gat varla drukkið kampavínið sem Capleguy opnaði í tilefni dagsins. Afmælisdagurinn var fremur leiðinlegur vegna heilsuleysis. Til að toppa leiðindin þrufti ég að sjá sveppasýkinguna á kaffihúsinu sem e´g ætlaði inná. Þar sem ég er með fungusfóbíu snéri ég við í dyrunum og sagði samferðamönnum mínum að það væri sýking þarna inni.

Engin voru áramótaheitin strengd þessi áramót enda man ég ekki eftir að ég hafi nokkurn tíma staðið við þau. Frekar ætla ég að reyna að tileikna mér nýjar venjur, eins og t.d. vakna fyrr á morgnanna, borða hollari mat og hreyfa mig meira!!!!

Annars er kalt hér í bruxinu og stendur mér hugur næst að taka leigara heim til að þurfa ekki að labba 300 metra í metró og svo 100 metrana eftir metró, en well það er kreppa og ætla ég því að láta mig hafa þessa 400 frostbitnu metra. Adio Im off!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2008 16:32:28 / erna

Jólin koma

 Hún Rakel mín rauða var hér um daginn. Hún er víst ein af fáum íslendingum sem kemst eitthvað um þessar mundir þar sem framfærsla hennar er greitt í erlendum gjaldmiðli. Hún gisti hjá sameiginlegri vinkonu okkar en ég náði samt að troða mér upp á þær flesta dagana. Það helsta sem var gert var að drekka rauðvín, borða, drekka bjór, borða, drekka meiri bjór, drekka meira rauðvín, borða, drekka allt sem var til í húsinu, borða osfrv. Allt saman stórskemmtilegt, hápunkturinn var þó þegar Rakel tók sig til og sýndi okkur Loftfimleika. Sagan segir að hún hafi átt það til að sýna þessar listir sínar á vinnufögnuðum og öðrum stöðum enda mjög hæfileikarík og margfaldur íslandsmeistari.

 

Annars er allt gott að frétta úr bruxinu, um helgina fer ég til Norður belgs að hitta vonandi skemmtilegt fólk. Jólagjafainnkaupin eru að klárast og vinnueinbeitingin löngu farin í burtu. Jólamarkaður í kvöld, Parísarhjól skautar, glue wine og vond belgísk kássa Úje hlakka samt mikið til!!!

 

See ya soon


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 14:40:56 / erna

Snjór in da Brux

 

Jæja þá er maður búinn að fara og heilla Norðmenn upp úr skónum. Osló fannst mér ótrúlega svipuð Reykjavík á margan hátt. Langt síðan ég hef séð Trendí fólk og þurft að bíða í biðröð út í kulda áður en ég fer in á ómerkilegan pöbb. En hvað um það hápunktur ferðarinnar átti sér stað klukkan hálf fjögur á aðfaranótt föstudagsins. Brunavarnarkerfi hótelsins fór af stað og ég vaknaði við mikil læti og það kviknaði á sjónvarpinu inni í herberginu hjá mér. Nú það er ekki meira um það að segja nema að á skjánum stóð rauðum stöfum að ég ætti að drulla mér út og ekki taka lyftuna því það væri kviknað í. Ég lallaði mér í róleg heitum út í kuldan einungis til þess að komast að því að þetta var gabb og það var ekkert kviknað í. En jæja ósofin mætti ég svo á fundi daginn eftir.!!!! Ég lengdi Osló dvölina um einn dag og hitti treiní vinkonur mínar frá því í fyrra. Mikil voru fagnaðarlætin og aðra eins gestrisni hef ég sjaldan fengið... eða ekki. En samt skemmtilegra en ég bjóst við því ég var farin að sjá eftir því að taka þennan auka dag. Mikið var ég samt fegin að koma til baka í Bruxið í fínu hreinu íbúðina mína og hafa það notarlegt og horfa á snjóinn falla. Jebb það er snjókoma hér í Bruxinu.

 

P.s. 16 Des kem ég á trópical eyjuna aftur, ég er farin að telja niður dagana!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 16:42:47 / erna

Moogie boogie

 En já Mugie boogie var brill. Ekki að spyrja að drengnum hann kann þetta. Helvítið sá arna tók ekki eitt uppáhaldslagið mitt af Múgamömmu disknum en bætti það nú heldur betur upp með því að taka lagið fyrir mig baksviðs eftir tónleikana. Jebb ekkert grín og ekkert sóðarlegt rokklíferni viðloðandi. Sjarmurinn bara bauð mér og einu pari baksviðs svo hann gæti spilað fyrir okkur lögin sem við vildum heyra. Amm aldrei hef ég heyrt um svona góða meðferð á aðdáendum. Við héldum svo öll út í nóttina sæl og glöð.

 

Þá er komið að því að fara í njósnarferð til Noregs fyrir hönd leynistofnunar Svefta. Á morgun mæti ég með búnaðinn í vinnuna og fer laust eftir hádegi á völlinn. Mun ég næsta víst skjálfa úr kulda í Norge fram á næsta laugardag og reyna að þefa upp Olíusjóði.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 15:58:05 / erna

Alloagain

 

Loksins er komið að því að blogga aftur, kreppan er búin, Icesave er leyst.... er það ekki annars. Ekki meira krepputal samt enda nóg um það.

 

Margt hefur drifið á daga mína frá síðustu færslu. Það sem helst stendur upp úr er Skotlandsferðin skemmtilega þar sem ásta tók vel á móti mér. Það var kalt í Eden en borgin engu að síður skemmtileg. Mér leið eins og ég væri stödd í Harry Potter mynd. Í Eden var eilítið dreitt á bjór og farið á sögulsóðir treinspotting þar sem nokkrir furðufuglar voru barðir augum. Gengið um strendur skotlands og prufuð einhverskonar plokkfisksúpa ásamt mörgu öðru skemmtilegu. Ásta mín á greinilega marga skemmtilega vini og var mjög gaman að hitta þá og auðvitað sérstaklega gaman að hitta hana.

 

Annars er það af mér að frétta að ég er alltaf að gera eitthvað skemmtilegt, enda brux skemmtilegasta borg í Evrópu ef niðurstöðum skoðanakannanna er snúið við. Mugison er að spila á morgun og ætla ég því að vera róleg í kvöld og reyna að losna við slenið sem er í mér, sigurrós er að spila hérna á sunnudaginn en því miður er uppselt á þá góðu drengi. En hvað um það ég blogga fljótt aftur ég lofa, blogg kreppan er að minnsta kosti liðin

 

Ein kreppusaga hér í lokin: Í dag pantaði ég mér flugmiða til Akureyrar milli jóla og nýjars, blöskraði mér mikið verðið sem var rúmlega 17 þúsund krónur fyrir return, þá var mér bent á að þetta væri rétt um 100 evrur!!!  Já það er ljúft að fá laun í evrum

 

Kv. Jors trúlí


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 16:01:45 / erna

brátt lifnar yfir mér aftur

 

Ég er ekki daud ég bara med bloggleti. Blogga brátt aftur


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 13:44:36 / erna

Yess boss

 

Ónæmiskerfið brást mér eftir allar þessar leiðindafréttir frá da melting Ice og sit ég nú með hálfgert slen en ekki nógu mikið til að halda mér heima við. En alla vega Geir Haarde á forsíðu financial times í dag. Ég get samt ekki sagt að það hafi fyllt mig þjóðarstolti að sjá voran forsætisráðherra framan á þessu virta viðskiptablaði. En burt frá kreppu, um helgina verður tilraun #2 að skoða sveitir Flanders. Ég ætla á slóðir WW1 með Stefaníu minni og hlakka mikið til. Við fáum lánaðan bíl í herlegheitin og ætlum að gista í gamalli kirkju. Úje þetta verður gaman!!!

 

Kvöldið verður helgað IKEA, því þangað þarf ég að fara og skila einni hillu sem ég óvart keypti í rangri stærð. Þegar sú ferð er búin mun ég líklega halda áfram skriftum á bókinni IKEA for dummies, því ég tel mig hafa lent í öllum þeim litlu vitleysis gildrum sem IKEA býður upp á síðan ég flutti hingað og mun þessi reynsla mín kannski nýtast öðrum til varnaðar.

 

En allavega enjoy the weekend, ég minni á eggjahræru uppskriftina sem ég póstaði um daginn, mjög ódýr og góð lausn.

og til að lífga upp á tilveruna endilega tékkið á þessu lagi


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 09:08:15 / erna

Efnahagsóstand og sadómasó

 Það er ekki laust við að það sé smá skjálfti í íslendingum hér hjá Leynistofnun Svefta vegna íslenska efnahagsástandsins. Þrátt fyrir verndað umhverfi evrunnar hér í Brux stendur manni alls ekki á sama hvað er að gerast. Ég ætla samt ekki að gerast pólitískur bloggari á þessari síðu en bendi góðfúslega á Moggabloggið mitt sem er á slóðinni www.aasifff/mbl.is

 

Þá vil ég að lokum nefna að ég er orðin opinber sadó masó. Ég hef gengið til liðs við ákveðinn félagsskap og tvisvar í viku mæti ég þar og tek út mína niðurlægingu!!! Mér segir svo hugur um að ungfrú kennaralufsa líki engan vegin við mig vegna lítilla frönsku hæfileika og að henni finnst sérstaklega ánægjulegt að niðurlægja mig. Vegna stuðningsaðgerða við íslenska ríkisborgara lítur verð ég þurfi að leita niðurlægingar annarstaðar eða bara alls ekki. Thórunn er hér núna að svara spurningum um íslenskt efnahagslíf og Vala kemur á Monday og mun væntanlega þurfa að svara sömu spurningum.

 

En amk núna vita íslendingar sem eru að ferðast í evrópu hvernig það var að vera austurevrópubúi í heimsókn á íslandi árið 2006!!!!  Alltaf gott að víkka sjóndeildarhringinn. Enjoy your day darlings.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.09.2008 11:56:40 / erna

Barce!!

Þegar þetta er skrifað ætti ég að sitja á römblunni með fulla poka af fötum og drekka hvítvín eða bjór....  en neeee my flight was cancelled. Eini möguleiki okkar var að fá flug á laugardagsmorgun til Barce en þar sem flugið er heim á mánudaginn var það ekki alveg að ganga. Við cancelluðum því miðanum í heild og Brux var eini kosturinn. Mest svekkjandi er þó að tveir menn sem við höfðum aðeins rætt við sem voru á leið til barce líka buðu okkur far til Parísar 10 sec eftir að við cancelluðum því þeir ætluðu að fljúga þaðan en helv gellan vildi ekki breyta því fyrir okkur því flight has already been cancelled..... trunta. Hér sit ég því svekkt og súr en á kafi í vinnu, þannig að mig er farið að gruna Leynistofnun Svefta um að hafa staðið fyrir þessu. Til að fullkomna svekkelsi helgarinnar hef ég ákveðið að fara í IKEA í kvöld.... Smá sjálfspynting bætir og kætir þegar maður situr í Brux en ekki Barce eins og planað var.

 

Ryanair á von á stórri kröfu frá mér takk fyrir.......

Ásta mín ég vona ad helvítin cancelli mér ekki thegar ég á ad koma til thín


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 14:21:01 / erna

Betra er blátt auga en illt auga!!!

  Æm back, fullt búið að gerast og það kemur í skömmtum á næstunni.

Nú það er helst í fréttum að Maggamín og Káriminn stoppuðu við hér í brúðkaupsferðinni sinni. Skemmtilegt fólk það og gaman að hafa þau í heimsókn. Góður matur og gott vín var aðalþemað í heimsókninni. Ég brá mér til Króatíu um daginn til að geta boðið þeim upp á almennilegt vín enda eiga þau bar það besta skilið. Við héldum smá keppni sem þátttakendurnir sjálfir vissu ekki um en þau voru dæmendur og verð ég að segja að niðurstaða dómaranna er Múr mikið að skapi. Engin er gleðin skuggalaus því þau voru rænd blessunin eitt rólegt föstudagskvöld. Eh Halim Alinn hérna gerðist svo grófur að ráðast á Káraminn og taka af honum handtöskuna (hennar Mögguminnar) og skildi hann eftir blæðandi í götunni. Löggan kom á svæðið og var öll sú almennilegasta og keyrði þau upp á spítala þar sem gera þurfti að sárum Káramíns, þrjú spor takk fyrir og bólgið blátt auga. Ég segi nú bara að það er eins gott að þetta var Káriminn en ekki Maggamín því annars held ég að ljúflingurinn hann Káriminn hefði fengið illt auga það sem eftir er brúðkaupsferðarinnar en þau eru nú á spáni, svo er það NY svo er það Karabíska svo LND svo klakinn.. ekki gaman að vera rændur í upphafi slíkrar ferðar buhu.

Ég vil svo endá á því að óska henni Henný til hamingju með afmælið í gær, vona að hún sé orðin nógu gömul til að koma og heimsækja mig einn daginn, nema hún sé kannski orðin of gömul til að heimsækja mig!!! En allavega bloggafmælisknús!!

 klapp klapp

Bíð spennt eftir næstu gestum Adios

 Maggamín og Káriminn góða skemmtun það sem eftir er ferðarinnar og sorry fyrir dónaskapinn í liðinu hérna.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 12:05:07 / erna

Eggjahræra a'la Erna

 

Ég geng um eins og fótboltamaður í dag út af harðsperrum í rass og lærum. Engar harðsperrur í maganum sem sannar kenningu mína um að ég er fædd án magavöðva. Í stað þess að fara í ræktina í hádeginu fór ég með M&M og fékk mér afrískan lunch og mun koma í ljós eftir stuttan tíma hvaða áhrif það hefur á magavöðvalausan magann minn. Annars er aðalástæða þessarar færslu að deila með ykkur þeirri allra bestu eggjahræru uppskrift sem ég hef smakkað. Í gær rambaði ég inn á þetta þvílíka lostæti með því að taka úr ískápnum það sem ég þarf að reyna að borða áður en ég fer í langþráða ferð til Ljubli og Zagreb.

 1. stk. Saxaður Laukur
eitt hvítlaukslauf
Slatti af söxuðum Kóríanderlauf
slatti af sveppum
2 egg
smá mjólk
slurkur af tómatsósu
salt, pipar og annað krydd eftir smekk (chilli kemur sterkt inn)

 Þið byrjið á því að steikja laukinn og hvítlaukinn í smjöri, bætið svo sveppum og kóríander við, steikið í smá stund. Hrærið saman egg, tómatsósu og mólk, kryddið ofan í hræruna og hellið yfir grænmetið á pönnunni. Einfaldara getur þetta ekki verið en þetta svínvirkar.

 Berið fram með sallati

 Og hana nú adios ég mæli eindregið með þessari uppskrift, ódýrt, flótlegt og ótrúlega gott.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 14:33:49 / erna

Fæðingargalli

  Í dag komst ég að því að ég er með fæðingargalla, s.s. er algerlega magavöðvalaus, spurning hvort maður komist á örorku eða fái einhverjar bætur fyrir þetta. Ég var í Abba tíma í ræktinni og kellingar mörgum árum eldir og mun feitari en ég gátu mun fleiri magaæfingar. Önnur skýring gæti reyndar verið að magavöðvarnir mínir meika ekki Abba tónlist. Sjáum til en ég ætla að berjast við þennan fæðingargalla og halda áfram för minni í Abba kerlingartíma á mánudögum í hádeginu.

 Annars er allt gott af mér að frétta helgin var að mestu leyti róleg en smá skúrir á föstudeginum. Við Vala fórum í dinnz eins og svo oft áður og sátum nánast í kjöltunni á ensku pari sem við síðar fórum og sýndum Brusselískt næturlíf. Stórskemmtilegt fólk þar á ferð og skemmtielgt kvöld. Kvöldið hjá mér endaði svo að sjálfsögðu á Archi þar sem ég kynntist meðal annars sjónvarpsstjörnu og heilum homma vinahóp. Já Archi is the place to be in da brux.

 Ég hef horft aðeins of mikið á Litle Brittain undanfarið og er mér farið að dreyma þá félaga hvað eftir annað eins og þeir séu bara partur af mínu normal lífi, t.d.  í morgun beið David eftir að ég kláraði að fara í sturtu og ætlaði svo að skutla mér í vinnuna með tölvuna sem ég ætla að skila!!!!

En já fríið mitt nálgast, Einn dagur í vinnu eftir og svo fer ég til Ljubli eða réttara sagt beint til ZG og svo ljubli daginn eftir úje sól og sumar spáir 27 stigum í Ljubli


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 09:48:34 / erna

I got me a table

 

Það merkilegasta sem hefur drifið á daga mína frá síðustu færslu er án efa að ég fór í Horrorshop í gær og viti menn sú ferð tókst vonum framar. Ég kom heim heil á geði og með eldhúsborð og stóla. Nú er ég s.s. loksins komin með eldhúsborð og stóla. YAY ég ætla að nýta tækifærið og bjóða einhverjum í mat mjög fljótlega.

 

Annað nokkuð skondið en ekki svo merkilegt kannski var að 23 ára frakkanágranninn minn bauð mér í drykk um helgina. Ungi sveinninn var með partý þegar ég kem heim laust eftir miðnætti á laugardagskvöldið en henti fólkinu út þegar ég kom til að geta boðið mér í exclusive drykk. Gott er að eiga góð samskipti við nágranna og allt það en mér leist lítið á það þegar hann reyndi að troða tungunni í kokið á mér. Mér brá svo mikið að ég helti rauðvíni yfir hvíta sófann. Sem betur fer átti ég blettahreinsi uppi og hljóp upp til að ná í hann og við hentum coverinu í þvottavél .Sagan segir að rauðvínið hafi allt náðst úr. Ég hef einu sinni hitt hann eftir þetta og lét bara sem ekkert væri eins og mér einni er lagið.

 

Já svona er lífið í Nóvember veðri í Brux. Fljótlega flýg ég þó suður á bóginn og hlakka mikið til....... úje Ljubli æm komming


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 13:10:34 / erna

hugarangur á heimilinu

  Ég er orðin nettur masókisti því ég held áfram ferðum mínum í Horrorshop. Í gær fór ég að skila borðinu ljóta sem ég ætlaði ekki að kaupa um daginn. Það fór ekki betur en svo að ég þurfti að bíða í c.a. 45 mín til að skila f”$$%% borðinu og hljóp svo inn í búð til að reyna að ná í rétt borð fyrir lokun. En viti menn þá er það borð uppselt og kemur ekkert aftur! YAY og ég búin að samvelja þetta svona vandlega og setja saman stólana, sem bætheway passa ekki inn í plan B. Helginni verður því eytt í að hugsa málið og jafnvel enn eina Horrorshop ferðina ásamt öðrum verslunarleiðangri.. Næs ekki satt.

 

En já tónleikar með Sonic Youth og Massive Attack að baki. Sonic voru brill og Massive ekki alveg nógu massívir. Ætla að taka því rólega um helgian eftir allt þetta útstáelsi í vikunni en verð víst að fara í field trip með vinnunni á Plux á eftir. Damn erfitt líf

 

Over and out ég er algerlega andlaus í dag


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 12:26:28 / erna

Mjá

  Ég kem fersk úr gymminu núna og ætla að fara að massa vinnuna en ákvað að skrifa nokkrar línur svona ykkur til skemmtunar. Ævintýrin hér í Brux halda áfram að vera skemmtileg. Á föstudagskvöldið fór ég í matarboð til Gaua og Gokke. Skemmtilegt kvöld með hnetusteik, hvítvíni, kokteilum og youtube sessioni. Á laukvöld rambaði ég óvart inn á næturklúbb sem var fullur af myndarlegum vel klæddum karlmönnum, það tók mig ekki langan tíma að átta mig á því að ég var stödd á næturklúbbi sem einungis samkyhneigðir karlmenn sækja. Rétt eftir að ég kom inn slökknuðu ljósin og Björk kom og söng Oh so quiet á barborðinu, síðan tróð Amy Winehouse upp og einhver önnur dragdrottning sem ég er ekki klár á því hver átti að vera. Sórkostlega skemmtileg upplifun þetta, held ég hafi aldrei farið á alvöru dragdrottningarkvöld áður.

 

Af heimilislífinu er það að frétta að ég skrapp enn eina ferðina í Horrorshop í gær. Þessi Horrorshop ferð gekk vonum framar þangað til það kom að því að taka he&%/%&% ógreiðabílinn heim með allt djásnið. Þó það væru fullt af bílum þarna þá samt tók he%$#%& ógreiðabíllinn nokkrar ferðir í einni sem hafði það í för með sér að ég þurfti að rúnta um með djásnið og var alls ekki viss um að IKEA quality myndi þola aksturslagið, en allt kom þó heilt heim. M&M þessi elska kom til mín til að hjálpa mér að bera upp og setja saman húsgögn, en viti menn ég keypti vitlaust borð og önnur IKEA ferð býður mín því í þessari viku.

 

But well best að fara að vinna, þarf að fara tiltölulega snemma í dag. Sonic Youth tónleikar í kvöld og svona …. Víha


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13