Það er ekki laust við að það sé smá skjálfti í íslendingum hér hjá Leynistofnun Svefta vegna íslenska efnahagsástandsins. Þrátt fyrir verndað umhverfi evrunnar hér í Brux stendur manni alls ekki á sama hvað er að gerast. Ég ætla samt ekki að gerast pólitískur bloggari á þessari síðu en bendi góðfúslega á Moggabloggið mitt sem er á slóðinni www.aasifff/mbl.is
Þá vil ég að lokum nefna að ég er orðin opinber sadó masó. Ég hef gengið til liðs við ákveðinn félagsskap og tvisvar í viku mæti ég þar og tek út mína niðurlægingu!!! Mér segir svo hugur um að ungfrú kennaralufsa líki engan vegin við mig vegna lítilla frönsku hæfileika og að henni finnst sérstaklega ánægjulegt að niðurlægja mig. Vegna stuðningsaðgerða við íslenska ríkisborgara lítur verð ég þurfi að leita niðurlægingar annarstaðar eða bara alls ekki. Thórunn er hér núna að svara spurningum um íslenskt efnahagslíf og Vala kemur á Monday og mun væntanlega þurfa að svara sömu spurningum.
En amk núna vita íslendingar sem eru að ferðast í evrópu hvernig það var að vera austurevrópubúi í heimsókn á íslandi árið 2006!!!! Alltaf gott að víkka sjóndeildarhringinn. Enjoy your day darlings.