Madame Erna
18.11.2008 16:42:47 / erna

Moogie boogie

 En já Mugie boogie var brill. Ekki að spyrja að drengnum hann kann þetta. Helvítið sá arna tók ekki eitt uppáhaldslagið mitt af Múgamömmu disknum en bætti það nú heldur betur upp með því að taka lagið fyrir mig baksviðs eftir tónleikana. Jebb ekkert grín og ekkert sóðarlegt rokklíferni viðloðandi. Sjarmurinn bara bauð mér og einu pari baksviðs svo hann gæti spilað fyrir okkur lögin sem við vildum heyra. Amm aldrei hef ég heyrt um svona góða meðferð á aðdáendum. Við héldum svo öll út í nóttina sæl og glöð.

 

Þá er komið að því að fara í njósnarferð til Noregs fyrir hönd leynistofnunar Svefta. Á morgun mæti ég með búnaðinn í vinnuna og fer laust eftir hádegi á völlinn. Mun ég næsta víst skjálfa úr kulda í Norge fram á næsta laugardag og reyna að þefa upp Olíusjóði.

Halli skrifaði
Muggasonur bara svona vinalegur, en sætt.

ég mæli með sjósundinu í Oslófirði ;)


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.