Hún Rakel mín rauða var hér um daginn. Hún er víst ein af fáum íslendingum sem kemst eitthvað um þessar mundir þar sem framfærsla hennar er greitt í erlendum gjaldmiðli. Hún gisti hjá sameiginlegri vinkonu okkar en ég náði samt að troða mér upp á þær flesta dagana. Það helsta sem var gert var að drekka rauðvín, borða, drekka bjór, borða, drekka meiri bjór, drekka meira rauðvín, borða, drekka allt sem var til í húsinu, borða osfrv. Allt saman stórskemmtilegt, hápunkturinn var þó þegar Rakel tók sig til og sýndi okkur Loftfimleika. Sagan segir að hún hafi átt það til að sýna þessar listir sínar á vinnufögnuðum og öðrum stöðum enda mjög hæfileikarík og margfaldur íslandsmeistari.
Annars er allt gott að frétta úr bruxinu, um helgina fer ég til Norður belgs að hitta vonandi skemmtilegt fólk. Jólagjafainnkaupin eru að klárast og vinnueinbeitingin löngu farin í burtu. Jólamarkaður í kvöld, Parísarhjól skautar, glue wine og vond belgísk kássa Úje hlakka samt mikið til!!!
See ya soon