Ég er orðin nettur masókisti því ég held áfram ferðum mínum í Horrorshop. Í gær fór ég að skila borðinu ljóta sem ég ætlaði ekki að kaupa um daginn. Það fór ekki betur en svo að ég þurfti að bíða í c.a. 45 mín til að skila f”$$%% borðinu og hljóp svo inn í búð til að reyna að ná í rétt borð fyrir lokun. En viti menn þá er það borð uppselt og kemur ekkert aftur! YAY og ég búin að samvelja þetta svona vandlega og setja saman stólana, sem bætheway passa ekki inn í plan B. Helginni verður því eytt í að hugsa málið og jafnvel enn eina Horrorshop ferðina ásamt öðrum verslunarleiðangri.. Næs ekki satt.
En já tónleikar með Sonic Youth og Massive Attack að baki. Sonic voru brill og Massive ekki alveg nógu massívir. Ætla að taka því rólega um helgian eftir allt þetta útstáelsi í vikunni en verð víst að fara í field trip með vinnunni á Plux á eftir. Damn erfitt líf
Over and out ég er algerlega andlaus í dag